Vefsíðan heitir Wikifeet og þar eru tær rúmlega 300.000 einstaklinga, en tærnar er búið að meta og gefa einkunnir. Vegna þess að þetta eru upplýsingar sem við þurfum… eða hvað?
Efst á lista er engin önnur en Emma Watson, með þessar líka gullfallegu tær.
Jennifer Aniston er í fjórða sæti með sínar tær.
Mila Kunis á líka tær á síðunni, en hún hefur ekki verið sett í neitt ákveðið sæti enn sem komið er.
Selena Gomez er í öðru sæti.
Megan Fox á þessar sætu tásur.
Sagan segir að síðunni sé haldið uppi af mönnum sem haldnir eru fótablæti og það er án efa ekkert langt frá sannleikanum.