Sonur hennar lenti í því hræðilega atviki að þrír fullorðnir menn stoppuðu hann í Breiðholtinu og reyndu að stela vespunni hans.
Þrír fullorðnir menn á tveimur rauðum vespum stoppuðu 14 ára son minn þar sem hann var að keyra á vespunni sinni í kvöld og reyndu að taka hana af honum með valdi. Hann slapp frá þeim en þeir eltu hann dágóða stund áður en þeir gáfust upp og hurfu.
Ekki nóg með að það sé endalaust verið að reyna að saga á lásinn, núna eru þessir aumingjar farnir að reyna stela vespum með því að ógna börnunum sem eiga þær! Hvað er í gangi????