Íslendingar eru ekki vanir Michelin stjörnum hér á landi – en það breytist um helgina. Hinn magnaði danski veitingastaður Kadeau, sem skartar hvorki meira né minna en tveimur Michelin-stjörnum, mun taka yfir ÓX, minnsta veitingastað landsins um helgina.
Kadeau tekur innblástur frá eyjunni Bornholm – þar sem allt þeirra grænmeti í matseldina er ræktað. Staðurinn þykir einn sá allri besti af veitingastöðum Danmerkur.
Í tilefni af helginni hafa Kadeau og ÓX splæst í 15 rétta matseðil sem er sérstaklega gerður fyrir gesti ÓX um helgina.
Hvað er ÓX?
Kannski hafa ekki margir heyrt um ÓX – en hann er minnsti veitingastaður landsins. Hann opnaði formlega í apríl á þessu ári. Staðurinn hefur vakið mikla lukku hjá þeim sem hafa sótt staðinn – en hann er ellefu sæta veitingastaður sem er falinn á bak við Sumac Grill + Drinks á Laugavegi 28.
Líkt og hægt er að geta sér til – er fullbókað um helgina á ÓX en hægt er að skrá sig á biðlista – eða snæða á Sumac – til að hið minnsta upplifa Michelin stemninguna.