Auglýsing

Lögreglan var kölluð til COSTCO – Ingibjörg þurfti að bíða í hjólastólnum sínum úti í kuldanum! – MYNDIR

Hún Ingibjörg sagði frá því í Facebook hópnum COSTCO – Gleði að manneskja lagði bílnum sínum vel inn á fatlaða stæðið hennar svo hún komst ekki í bílinn sinn.

Ingibjörg endaði með að þurfa hringja á lögregluna til að leysa málið.

Ekki mikil gleði hjá mér þegar ég kom út úr costco um korter í fimm í dag, þar sem ég er hjólastóla bundin þá komst ég ekki inn í bílinn minn…
þessi bíll lagði ekki bara yfir rendurnar heldur líka inn á stæðið hjá mér… ég þurfti að kalla til lögregluna til að hjálpa mér að færa bílinn svo ég kæmist inn og þurfti ég að bíða í meira en tuttugu mínútur eftir þeim… þessi stæði eru ekki merkt fötluðum bara upp á djókið, við þurfum allt þetta svæði til að komast inn og út úr bílnum…
og það kaldhæðnislega er að þegar ég legg þarna þá var annar bíll sem hafði troðið sér þarna en var samt ekki inn á stæðinu sem ég var á heldur á röndunum þess vegna er bíllinn minn á mörkunum á röndunum fyrir næsta stæði og afsökun þeirra manneskju var að hún tók ekki eftir röndunum sem er bara bull því það var bjart þá og sáust þær vel…
en þessi bíll NLL30 sló öll met og langar mig að vita hvar þessi persóna lærði á bíl og hvaða umferðarreglur hann/hún lærði þessum bíl var lagt ólöglega!!!
Ég var heppin að það var yndisleg kona sem kom til mín og lánaði mér teppi á meðan ég beið eftir lögreglunni og vil ég þakka henni kærlega fyrir að bjarga mér í þessum kulda…
Lögreglan segir að Costco eigi planið, Costco bendir á Garðabæ… svo nú þarf Garðarbær að fara bretta upp ermarnar og taka á þessu…

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing