Hin 19 ára gamla Halle Bailey mun fara með hlutverk litlu hafmeyjunnar, Ariel, í komandi endurgerð af teiknimyndinni vinsælu. Rob Marshall mun leikstýra kvikmyndinni en hann sagði að eftirmikla leit væri það ljóst að Bailey væri besti kosturinn í hlutverkið.
Bailey er hvað þekktust fyrir hljómsveitina Chloé X Halle sem hún er í ásamt systur sinni Chloé. Þær voru uppgötvaðar í gegnum You-Tube eftir að þær birtu myndbönd af sér að syngja lög Beyoncé. Þær hafa síðan þá gefið út tvær plötur og hitað upp fyrir Beyoncé á tónleikaferðalagi. Bailey hefur einnig farið í með hlutverk í nokkrum smærri sjónvarpsþáttum á borð við Grown-ish og Austin & Ally.
Endurgerð Litlu Hafmeyjunnar mun svipa til annarra endurgerða sem Disney hefur verið að senda frá sér undanfarið á borð við Aladdín, Lion King og Fríða og Dýrið.
dream come true… ??♀️? pic.twitter.com/sndjYUS6wO
— chloe x halle (@chloexhalle) July 3, 2019