Söngkonan Rihanna birti í gær mynd af tvífara sínum á Instagram. Tvífari Rihönnu er ung stúlka en líkindin eru frekar greinileg.
„Missti næstum því símann minn. Hvernig?“ skrifar Rihanna á Instagram við myndina af stelpunni ungu. Flestir eru sammála Rihönnu að þær séu líkar en rapparinn Snoop Dogg spurði í athugasemd við myndina hvenær Rihanna hefði eignast dóttur.
Stúlkan sem heitir Ala er með sína eigin Instagram-síðu þar sem hún er skráð sem barnafyrirsæta.