101 Sambandið er nýtt símafyrirtæki úr smiðju 101 Productions. Tilkynnt var um stofnun fyrirtækisins á fréttamannafundi í morgun.
Fyrirtækið verður rekið á dreifikerfum Vodafone. Sýn hf., eigendur Vodafone á Íslandi, á þá helmingshlut í rekstrarfélagi símafélagsins. Fólkið úr Útvarpi 101 er þó á bakvið 101 Sambandið og skrifstofur fyrirtækjanna verða á sama stað.