Auðunn Blöndal verður í nýju hlutverki hjá Stöð 2 í vetur en hann mun kynna sjónvarpsþáttinn Allir geta dansað ásamt sjónvarpskonunni Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur.
Sigrún var einnig kynnir þáttanna í fyrra en í vetur kemur Auðunn inn fyrir Evu Laufeyju. „Þessi tvö kunna ekki að dansa nema eftir nokkra kalda en ætla að kynna Allir geta dansað í haust á Stöð 2,“ skrifaði Auðunn á Facebook og birti mynd af sér og Sigrúnu Ósk.