Crossfit stjörnurnar Anni Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir unnu öruggan sigur á Butcher Classics CrossFit móti í Kaupmannahöfn um helgina. Þær unnu 6 af 7 greinum mótsins og voru langt fyrir ofan næstu keppendur.
Þær kepptu undir nafninu Rogue Dottirs og fengu 695 stig af 700 mögulegum, 40 stigum meira en næsta lið.