Lögreglan á Suðurnesjum hafði aldrei séð aðra eins tölu á áfengismæli eins og hún mældi hjá ökumanni sem var stoppaður út af grun um akstur undir áhrifum.
Maðurinn var ekki bara í engu ástandi til að keyra, heldur skilur enginn hvernig í ósköpunum hann hélt meðvitund og stóð í lappirnar.
Tilkynnt var um rásandi aksturslag bifreiðar um hádegibilið fyrr í vikunni og fylgdi tilkynningunni skráningarnúmer ökutækisins. Skömmu síðar stöðvuðu vaskir lögreglumenn för þessarar bifreiðar og höfðu tal af ökumanni. Ljóst var strax að ökumaður var alls ekki í standi til að aka bifreið og í raun var hann ekki í standi til að vera á fótum. Honum var kynnt að hann væri handtekinn grunaður um ölvun við akstur og var hann beðinn um að blása í áfengismæli og má sjá útkomuna á meðfylgjandi ljósmynd. Vakthafandi lögreglumenn, sem nokkrir eiga tugi ára að baki í lögreglu, höfðu aldrei séð aðra eins tölu á áfengismælinum og vonandi sjáum við aldrei aftur svona tölu. Ökumaður þessi á von á ansi langri ökuleyfissviptingu og svimandi hárri sekt.