Auglýsing

Jon Snow er á leiðinni í MARVEL heiminn – Þetta er viðeigandi ofurhetja fyrir hann að leika! – MYNDIR

Kit Harington, sem lék Jon Snow í Game of Thrones, er að fara skella sér í spandex gallann og gerast ofurhetja í Marvel heiminum samkvæmt nýjustu fréttum.

Kit mun leika vægast sagt viðeigandi hetju eftir hlutverk sitt í Game of Thrones, en hann mun taka að sér hlutverk Black Knight (Dane Whitman) í The Eternals:

Kit er að sögn vægast sagt spenntur fyrir nýja hlutverkinu, enda er hann meðal annars að fara leika með Angelina Jolie, Salma Hayek, Kumail Nanjiani og Richard Madden sem lék „bróður“ hans í Game of Thrones.

Spennan fyrir þessari mynd var nú þegar orðin mikil, en eftir þessar fréttir þá er maður ennþá spenntari – árið 2020 þarf að drífa sig að mæta á svæðið.

Vonandi mun Kit plumma sig vel sem The Black Knight.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing