Elon Musk, stofnandi rafbílaframleiðandans Tesla, Elon Musk, segir að þjónustumiðstöð fyrir eigendur Tesla-bifreiða opni hér á landi 9. september. Hann greinir frá þessu í svari við fyrirspurn á Twitter.
Íslendingurinn Hjörtur Brynjarsson spurði Musk á Twitter í gærkvöldi hvort að eitthvað væri að gerast í málinu. Elon Musk svaraði einfaldlega að útibúið myndi opna 9. september.
Opening on 9/9
— Elon Musk (@elonmusk) August 30, 2019