Auglýsing

Ævintýrland á Klambratúni—Miðasala hafin á Kátt á Klambra

Barna
– og fjölskylduhátíðin Kátt á Klambra verður haldin í
fjórða sinn næstkomandi sunnudag (28. júlí) á Klambratúni. Eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar opnar svæðið klukkan 11:00 og verður „sannkölluð karnival stemning frameftir degi
þar sem fjölskyldur koma saman og gera sér glaðan dag.“

„Kátt á Klambra er afslöppuð og notaleg hátíð með fjölbreyttri afþreyingu og skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskrá Kátt á Klambra 2019 er glæsileg að vanda og öll fjölskyldan ætti að geta fundið viðburði og smiðjur við hæfi.“

– Fréttatilkynning

Á hátíðinni stígur eftirfarandi listafólk á svið: Herra Hnetursmjör og Huginn, Gróa, Bjartar Sveiflur, DJ Flugvél og Geimskip, Tónafljóð og Krakkaveldi.

Þá verður alls kyns afþreying einnig í boði, þar á meðal barnayoga, föndur, vöffluskreytingar, sirkus, diskótjald, listasmiðjur, föndur, risa sápukúlur, hjólabrettasvæði, hugleiðsla, dans, risakubbar, fjársjóðsleit, raftónlistarsmiðja og risa slönguspil.

„Sérstaða Kátt á Klambra er að börn og fjölskyldur þeirra fá að taka virkan þátt í allskyns viðburðum og listsköpun saman í ævintýralegu og öruggu umhverfi.“

Miðasalan er hafin á Tix.is: Stakir miðar kosta 1.500 ISK, 4-manna fjölskyldupakki kostar 5.000 ISK og 8 manna fjölskyldupakki kostar 10.000 ISK (öll afþreying innifalin í miðaverði og matvagnar verða á svæðinu fyrir gesti). Það er frítt inn fyrir 0-3 ára.

Nánar: https://tix.is/is/event/8419/katt-a-klambra-2019/

Öll börn eru á ábyrgð foreldra og forráðamanna á svæðinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing