Blaðamaðurinn Thom Gibbs hjá breska dagblaðinu Telegraph átti sjáanlega erfitt með að kveðja íslensku aðdáendurna í Frakklandi í gær en hann sendi frá sér þetta skemmtilega myndband á heimasíðu Telegraph í morgun. Myndbandið var birt undir yfirskriftinni „Thom Voyage: waving a sad goodbye to beautiful Iceland“ og segir titill myndbandsins allt sem segja þarf.
„Þá kveðjum við Íslendinganna með tárin í augunum. en þeir voru frábærir og munu ávallt eiga sigurinn gegn Englandi sem allir höfðu gaman að, fyrir utan England.
– Thom Gibbs