Auglýsing

Námskeið með David Wolfe: styrktu ónæmiskerfið

Þann 13. nóvember á milli 12:00-15:00 mun Íslandsvinurinn David Wolfe halda spennandi námskeið fyrir alla heilsunörda sem vilja læra á bestu jurtirnar og fá góð ráð fyrir heilsuna frá þessum vinalega sérfræðingi. Á námskeiðinu kennir hann meðal annars hvernig útbúa skal heilsusamleg te og lækningardrykki með staðbundinni ofurfæðu og jurtum. David mun auka þekkingu nemenda á jurtum og einnig segja frá einfaldri aðferð til að hreinsa líkamann og halda kerfinu hraustu. Hann gleymir svo heldur ekki andlegu hliðinni og minnir okkur á að nýta og njóta lífsins til hins ýtrasta. Ekki missa af þessum skemmtilega og fróðlega viðburði.

Hvenær: Sunnudaginn 13. nóvember (12:00-15:00)
Hvar: Gló (Fákafeni 11)
Verð: 9.900 kr
Nánar:
https://www.glo.is/verslun/namskeid-og-fyrirlestrar

https://www.facebook.com/DavidAvocadoWolfe/?fref=ts

https://www.facebook.com/events/1124467740972606/

https://www.glokorn.is/matur-og-naering/heilsurad-fra-david-wolfe-myndband/


Til gamans má geta að David Wolfe er nýkominn af hinni árlegu Longevity Now ráðstefnu í Anaheim, California:

https://www.thelongevitynowconference.com

Á Longevity Now ráðstefnunni var farið yfir það nýjasta í óhefðbundnum lækningum þar sem áhersla er lögð á lengra og betra líf. Yfir 1.500 manns mættu í ár, margir fleiri fylgdust með á netinu, þar af 30.000 manns á live event á facebook.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing