Það er ekki langt síðan að „ungi jamaíski einkaþjálfarinn“ Marlon Smith vann hug og hjörtu netverja með einstökum myndböndum á Youtube. Með ástríðuna og einlægnina að vopni er hann staðráðinn að koma sjálfum sér og öðrum í form.
Fyrir nokkrum dögum síðan sendi hann frá sér nýtt myndband þar sem hann býður nýjasta meðlim líkamsræktarhópsins velkominn, en sá er aðeins yfir kjörþyngd að mati Marlon Smith.
„Strength! No weakness!“