Auglýsing

Jón Jónsson sendir Hannesi Þór hjartnæma kveðju

Söngvarinn Jón Jónsson sendi Hannesi Þór Halldórssyni hjartnæma kveðju fyrir leik íslenska landsliðsins gegn Englandi á Facebook í dag.

Kveðjan er svohljóðandi:

„Ég, rétt eins og öll íslenska þjóðin, er að rifna úr stolti yfir gengi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Ég er svo heppinn að þekkja nokkra í liðinu og veit hversu mikið þeir hafa lagt á sig til að uppskera slíkan árangur. Einn af mínum góðu vinum er Hannes Þór Halldórsson sem vægast sagt hefur slegið í gegn í Frakklandi. Hannesi kynntist ég fyrir rúmum 14 árum í Verzlunarskólanum og hef frá þeim tíma fylgst með öllum litlu skrefunum sem hann hefur tekið í átt að þeim stað sem hann er á í dag. Ferill þessa drengs er magnaður því þrátt fyrir að vera kosinn besti markvörður Shell-mótsins árið 1994 var leið hans á toppinn ansi hlykkjótt og hefur Hannes Halldorsson þurft að sigrast á mörgum hindrunum á sinni vegferð.

Eins og margir vita þá á Hannes einnig glæstan feril sem leikstjóri og í vetur dustaði hann rykið af klippiborðinu og púslaði saman fallegri N1-auglýsingu. Hann plataði mig til að koma laginu mínu, „Gefðu allt sem þú átt“ í nýjan búning og með ómetanlegri aðstoð vina minna, Salka Sól Eyfeld og Kristjan Sturla Bjarnason, varð til hljómfögur ballaða. Í framhaldinu höfum við fengið urmul fyrirspurna um lagið í fullri lengd og nú er kominn tími á að svara því kalli. En þar sem lagið kennir okkur að trúa á draumana okkar fannst mér ekkert annað koma til greina en að setja saman myndband Hannesi til heiðurs og vil ég þakka Snorri Barón Jónsson fyrir aðstoðina og auðvitað Allan Sigurdsson fyrir að klippa það saman.

Til lukku með árangurinn, Hannes, landsliðshetjur og allir Íslendingar. Gefum nú allt sem við eigum og tökum Englendingana!

LUV á línuna,
Johnny Jay“

Myndbandið sem Jón vísar í, í kveðjunni, má sjá á Facebook síðu Jóns:

https://www.facebook.com/jonjonssonmusic/

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing