Í gær (2. mars) gaf rapparinn Vala Crunk út mixteipið Bad Boys Bitches Blaze á Spotify (sjá hér fyrir ofan). Mixteipið inniheldur fjögur lög og skartar einum gesti, sumsé rapparanum Birni sem á erindi í þriðja lagi plötunnar, Horfir á Mig.
Þess má einnig geta að Vala Crunk, sem heitir réttu nafni Helga Vala Eysteinsdóttir, hyggst fagna útgáfu plötunnar á Prikinu í kvöld (3. mars).
Hér fyrir neðan er svo lagið Gella Megamix sem er að finna á mixteipinu Joey eftir Joey Christ en þar kemur Vala Crunk við sögu.