Fréttir
Í dag (3. maí) gáfu bandarísku rappararnir Logic og Eminem út lagið Homicide (sjá hér að neðan). Lagið verður að finna á plötunni Confessions of a Dangerous Mind sem Logic hyggst gefa út „á næstunni,“ þ.e.a.s. ef eitthvað er að marka tilkynningu frá rapparanum í mars. Frá þessu greinir Pitchfork.
Nánar: https://pitchfork.com/news/logic-and-eminem-announce-new-song-homicide/
Athygli vekur að Homicide geymir sampl frá grínistanum Chris D’elia sem gerði grín að Eminem í kjölfar útgáfu plötunnar Kamikaze í fyrra (sjá hér að neðan). Samplið hefst ca. 03:19.
Þá birti D’elia einnig neðangreint myndband í byrjun 2018 þar sem hann virðist stæla framkomu Eminem í hinum svokallaða BET Cypher árið 2017 (sjá neðst). Eminem var hæstánægður með myndbandið og deildi því á Twitter: „Í augnablik var ég sannfærður um að þetta væri ég,“ ritaði rapparinn.
Hér er svo tíst frá Chris D’elia frá því í gær þar sem hann tjáir ánægju sína með lagið.