Rapparinn Nas og söngkonan Erykah Badu voru gestir þáttarins Jimmy Kimmel Live í vikunni. Saman fluttu þau lagið This Bitter Land (sjá myndband hér fyrir ofan) en lagið hljómar í kvikmyndinni The Land. Þeim til halds og trausts var klassísk strengjasveit.
Ásamt því að kíkja við í viðtal hjá Kimmel tók Nas einnig þátt í leiknum „Nefndu dægurhetjuna“ („Name That Famous Celebrity“) ásamt leikaranum geðþekka Matthew Perry, betur þekktur sem Chandler úr sjónvarpsseríunni Friends.
Ef marka má viðbrögð áhorfanda á Youtube þá eru flestir hæstánægðir með samstarf Erykah Badu og Nas. Í athugasemdarkerfi Youtube er til dæmis að finna sérdeilis fyndna athugasemd eftir notandann H Bizzle, sem fangar stemningu lagsins vel:
„I had to wipe my tears with my Glock (Ég þurfti að þerra tárin með byssunni).“