Sýrland Sessions
Í nýjasta þætti vefseríunnar Sýrland Sessions flytur söngkonan Bríet lagið Dino í hljóðveri Sýrlands (sjá hér að ofan). Magnús Jóhann Ragnarsson lék á píanóið.
Líkt og fram kemur í viðtalinu er lagið tileinkað kærasta Bríetar, sem gengur undir viðurnefninu Dino:
„Ég fæ oft þessa spurningu: Af hverju lagið heitir „Dino“? Það er bara einfaldlega vegna þess að það er um kærastan minn. Hann hefur oft verið kallaður „Dino“ … og ástæðan fyrir því að þetta lag var til er einfaldlega vegna þess að ég elska kærastan minn svo mikið.“
– Bríet
Í þessum rituðu orðum situr lagið Dino í 28. sæti á lista Spotify yfir mest spiluðustu lögin á streymiveitunni á Íslandi.