Auglýsing

Hljómsveitin DALÍ gefur út nýtt lag: Joke

Síðastliðinn 12. júlí sendi hljómsveitin DALÍ frá sér myndband við lagið Joke (sjá hér fyrir ofan)Myndbandinu leikstýrði Helgi Reynir Jónsson, einn af gítarleikurum sveitarinnar, en myndbandið var tekið upp í Bandaríkjunum. 

Hljómsveitin DALÍ var stofnuð árið 2014 og samanstendur af fjórum meðlimum: Erlu Stefánsdóttur (söngur, bassi), Helga Reyni Jónssyni (gítar, hljóðblöndun, upptökur), Þórði Gunnari Þorvaldssyni (gítar, hljómborð, hljóðblöndun, upptökur) og Fúsa Óttars (trommur). DALÍ gaf út fyrstu plötuna sína, DALÍ, árið 2015.

Platan DALÍ á Spotify:

https://open.spotify.com/album/2SZGsh0QFwkfxhKdgv24kR

„DALÍ er samblanda af mörgum ,element-um’; örlítill sætleiki frá Joni Mitchell, harðgerður surrealismi frá Primus – í bland við einlægt ,attitude’ sjómannsins.“ 

– DALÍ (Bandcamp)

DALÍ er á fullu að undirbúa næstu breiðskífu en áhugasamir geta fylgst með sveitinni á eftirfarandi slóðum:

https://dalimusiciceland.bandc…

https://www.dalimusic.net/

https://twitter.com/music_dali

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing