Fréttir
Í gær (8. apríl) birti streymiveitan Netflix stiklu úr heimildarmyndinni Homecoming á Youtube-síðu sinni (sjá hér að ofan).
Í heimildarmyndinni eru tónleikar bandarísku söngkonunnar Beyoncé á Coachella tónlistarhátíðinni í fyrra til umfjöllunar. Tónleikarnir eru stundum kallaðir Beychella í ljósi þeirrar staðreyndar að þetta var í fyrsta sinn í sögunni þar sem þeldökk tónlistarkona var aðalnúmer hátíðarinnar—og eru flestir sammála því að Beyoncé hafi stolið senunni; söngkonan flutti 25 lög og var með 100-manna teymi með sér á sviði—bæði tónlistarfólk og dansara. Þá kom rapparinn, og eiginmaður Beyoncé, Jay-Z einnig við sögu á tónleikunum.
Þess má geta að röddin sem heyrist í stiklunni er rödd bandaríska ljóðskáldsins Maya Angelou (um er að ræða brot úr viðtali).
Homecoming verður frumsýnd á Netflix næstkomandi 17. apríl.