Nú er vetur, samkvæmt öllu, og allt það sem dirfist að blómstra er litið hornauga af því sem sölnar – og ekki síst íslenska rappsenan, sem andrík og frjó, hagar sér eins og gjörvallt árið sé eilíft vor, bara fæðir og fæðir og fæðir.
Í tilefni hins eilífa vors sem nú ríkir í íslensku rappsenunni, tók SKE saman nokkur rapplög sem komu út í febrúar, og sem voru, jafnframt, í sérstöku uppáhaldi:
9. FEVOR x PUSSWHIP – GTA
„Léttúð í lagaformi.“
8. Dabbi T – King
„Afturhvarf hins ,aldna’ meistara.“
7. Geimfarar – Peaceandharmony
„Friður og samlyndi.“
6. Marteinn – Mouie
„BNGR BOY á bítinu, sögðu þeir.“
5. sxsxsx – Bangbang
„Ákveðinn hvellur.“
4. Shades of Reykjavík – R.J.Ó.M.I.
„Cash Rules Everything Around Me.“
3. Ddykwl – Ástralía
„Grípandi laglína, gott lag.“
2. Shades of Reykjavík feat. BlazRoca – Kiss Kiss Bang Bang
„Nafnið okkar, á allra vörum. Draslið á okkur, á allra vörum.“
1. Reykjavíkurdætur – Kalla mig hvað?
„Dæturnar blómstra.“