Fresco við Suðurlandsbraut 4 leggur áherslu á ferska og frumlega salatrétti. Matseðillinn er virkilega
spennandi með ýmsum freistandi samsetningum. Þeir bjóða einnig upp á gríðarlega breitt úrval af allskyns
grænmeti, ávöxtum, hnetum og sósum ásamt kjúklingi, túnfisk og fleira tilheyrandi sem
viðskiptavinurinn getur svo valið úr af vild. Við hjá SKE ákváðum að setja saman okkar eigið salat. Ferlið
byrjar á því að velja ákveðinn grunn og svo hvað það sem hugurinn girnist úr fjölbreyttu úrvali og að
lokum dressingu að eigin vali. Við vorum mjög ánægð með heimsóknina og
sjáum fram á margar ferðir á Fresco á næstunni.