Fyrir viku síðan var nafnið Karamoko Dembele aðeins kunnugt örfáum áhugamönnum um fótbolta – en svo kom hann inn á með unglingaliði Celtic (undir 20 ára) gegn Hearts. Nú keppast fjölmiðlar víðs vegar um heiminn að lofsyngja hæfileika hans.
Dembele er ættaður frá Fílabeinsströndinni og ólst upp í suður London. Hann gekk í raðir Celtic þegar hann var aðeins 10 ára gamall og sögur herma að aðalþjálfari Celtic, Brendan Rodgers, hafi tröllatrú á honum.