Söngkonan Lana Del Rey sendi frá sér myndband við lagið Love í dag (20. febrúar). Lagið verður að finna á fimmtu hljóðversplötu söngkonunnar sem kemur út í ár. Platan hefur enn ekki fengið neinn formlegan titil.
Lítið er vitað um plötuna annað en að pródúsentinn Rick Nowels muni koma að gerð hennar ásamt Benny Blanco, Emily Haynie og „öðrum spennandi gestum,“ samkvæmt fréttatilkynningu fra söngkonunni.
„Fyrstu fjórar plöturnar gerði ég fyrir sjálfa mig, en þessi plata er fyrir aðdáendur mína.“
– Lana Del Rey