Reykjavíkurdætur sendu frá sér myndband við lagið Kalla mig hvað? í dag. Leikstjórar myndbandsins eru þær Antonía Lárusdóttir og Alda Karen Hjaltalín. Lagið er pródúserað af Marteini (BNGR BOY).
Samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurdætrum byggist myndbandið á norsku sjónvarpsseríunni SKAM.
SKE spjallaði við Steinunni Jónsdóttur fyrr í mánuðinum og spurði nánar út í lagið:
„Við frumfluttum lagið í beinni hjá hollenska ríkissjónvarpinu þegar við spiluðum á Eurosonic tónlistarhátíðinni … Kylfan með frábært ,comeback’ í laginu – nýskriðin úr fæðingarorlofi.“
– Steinunn Jónsdóttir