Í gær (29. júní) gaf Helgi B úr Landaboi$ út myndband við lagið Á réttum stað ásamt hljómsveitarbróður sínum Helga Trap og rapparanum Króla (hinn helmingur tvíeykisins Jói Pje og Króli).
Lagið pródúseraði $tarri og var það Hlynur Hólm sem leikstýrði.
Á réttum stað mun rata inn á streymisveituna Spotify von bráðar.
Hér fyrir neðan má svo sjá nokkrar klippur frá síðustu heimsókn Landaboi$ í útvarpsþáttinn Kronik.