Aðdáendur tvíeykisins HRNNR & Smjörvi hafa þurft að bíða í þó nokkurn tíma eftir nýju efni en þeir félagar gáfu síðast út lagið Mexicano á SoundCloud fyrir rúmum sjö mánuðum síðan.
Því má segja að biðin eftir nýrri tónlist hafi loks tekið enda í dag (23. október) þegar tvíeykið gaf út myndband við lagið OK BíDDU (sjá hér fyrir ofan). Lagið pródúseruðu HRNNR & Smjörvi sjálfir og sá Daði Freyr Ragnarsson (einnig þekktur sem Dadykewl) um leikstjórn myndbandsins.
Að lokum má þess geta að HRNNR & Smjörvi koma fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice á næsta ári. Hér fyrir neðan geta lesendur hlýtt á lagið Mexicano á SoundCloud ásamt flutningi tvíeykisins á Rúllum á bílum í útvarpsþættinum Kronik.
Nánar: https://secretsolstice.is/smjor…