Síðastliðinn mars fór Kanye West í IKEA í fyrsta skiptið. Eftir heimsóknina tísti hann um upplifunina og gaf það í skyn að hann væri opinn fyrir samstarfi.
Tæpum mánuði síðar skissaði Kanye mynd af hjónarúmi sem hann birti á Twitter. Tóku sumir þessu tísti sem duldum skilaboðum til IKEA.
Nú síðast var Kanye í viðtali hjá BBC 1 þar sem hann ítrekaði áhuga sinn á samstarfi með sænska fyrirtækinu: „Ég verð að vinna með IKEA: hanna húsgögn fyrir innanhúshönnuði eða arkitekta.“
Loks tísti IKEA í Ástralíu til baka með eftirfarandi skilaboð:
Í kjölfarið tóku nokkrir sniðugir einstaklingar upp á því að hanna IKEA vörur tileinkaðir herra West. Hér fyrir neðan má sjá afraksturinn.
(Source: Bored Panda)