Fréttir
Nýverið stóð rapparinn Emmsjé Gauti jólavaktina í verslun Origo í Borgartúni (sjá hér að ofan).
Ásamt því að afgreiða viðskiptavini verslunarinnar rýndi Gauti einnig í nýjustu tækni. Er rapparinn á því að mýs með ljósi séu „geggjaðar“ og að ákveðin praktík felist í því að geta beygt fartölvuskjái alveg aftur—þar sem það er svo mikið „vesen“ að snúa tölvunni við, svo að skjárinn snúi í átt að viðmælanda manns á kaffihúsinu.
Ef eitthvað er að marka orð rapparans er jólavaktin í Origo orðin að árlegri hefð:
„Þetta er orðinn órjúfanlegur hluti af jólunum.“
– Emmsjé Gauti
Að lokum má þess geta að örfáir miðar eru eftir á jólatónleika Emmsjé Gauta í Háskólabíó (uppselt er klukkan 17:00 og 20:00 næstkomandi 22. desember).