SKE Sport
Nýverið kíkti trompetleikarinn og íþróttamaðurinn Ari Bragi Kárason í hljóðver SKE.
Heimsóknin var liður í nýrri myndbandsseríu SKE sem ber heitið SKE Sport þar sem nýr íþróttamaður kíkir við í hljóðverið í hverri viku og svarar nokkrum laufléttum spurningum.
Fyrsti þáttur seríunnar var fremur óvæginn þar sem spyrillinn þjarmaði að spretthlauparanum viðfelldna á hispurslausan hátt; spurði blaðamaður meðal annars hvort að það væri einhver sem fylgdist með sjónvarpsþáttaröðinni Kórar Íslands á Stöð 2 – þar sem Ari Bragi sinnir dómarastörfum.
„Er þetta í alvörunni fyrsta spurninginn!? Mamma horfir. Mamma er drullusátt með þetta! Mömmu finnst þetta geggjað!“
– Ari Bragi Kárason
Hér er svo hlekkur á viðtal SKE við Ara Braga frá því í fyrra: