Keflvíski rapparinn Kíló var gestur Benedikts Freys og Róberts Arons í síðasta þætti útvarpsþáttarins Kronik (17. desember).
Ásamt því að spjalla við umsjónarmenn þáttarins, flutti rapparinn einnig tvö lög í beinni: Fucbois og Two Techs. Hér fyrir ofan má sjá Keflvíkinginn knáa flytja síðarnefnda lagið af mikilli innlifun.