Fjórði þáttur Kronik á X-inu 977 fór í loftið síðastliðið laugardagskvöld (17. desember). Þeir Róbert og Benedikt, umsjónarmenn Kronik, fengu til sín góða gesti, þar á meðal rapparann Kíló. Einnig kíktu þeir Sigurbjartur og Logi Pedro (úr Sturla Atlas) í heimsókn.
Kíló var í miklu stuði og flutti tvö lög í beinni: Fucbois og Two Techs. Hér fyrir ofan má sjá myndband af Kíló að flytja lagið Fucbois í beinni.