Lítið hefur farið fyrir tónlistarmanninum Hugin eftir útgáfu lagsins Gefðu mér einn síðastliðið vor.
Þegar SKE ræddi við hann í kjölfar útgáfunnar tjáði hann blaðamanni að hann sæti á miklu efni og stefndi að útgáfu mixteips í sumar:
„Ég sit á miklu efni sem ég hef verið að vinna í síðustu mánuði en er þannig séð ekki með neitt plan. Byrja að vinna í næsta myndbandi á næstu vikum og sjáum til hvort mixteip gæti ekki poppað upp í sumar.“
– Huginn
Nánar: https://ske.is/grein/huginn-gef…
Ekkert hefur bólað á mixteipinu síðan þá en aðdáendur Hugins geta þó huggað sig við nýtt lag sem kom út í gær (5. október) á Spotify. Lagið ber titilinn Eini Strákur og skartar rapparanum Helga Sæmundi, sem er oftast kenndur við tvíeykið Úlf Úlf (sjá hér fyrir neðan).
(Myndbandið við lagið Gefðu mér einn kom út í maí.)
https://www.youtube.com/watch?v=el6u209sMAI