Hljómsveitin Kaleo var gestur sjónvarpsþáttarins the Late Late Show í gær (25. apríl) sem breski grínistinn James Corden stýrir (sjá hér fyrir ofan). Söngvari sveitarinnar, Jökull Júlíusson, var íklæddur hvítri treyju frá íslenska landsliðinu í fótbolta er hann steig á svið. Sveitin tók lagið No Good.
Kaleo hefur verið á miklu flugi undanfarið og spilaði meðal annars á tónlistarhátíðinni Coachella í apríl. Blaðamaður Huffington Post skrifaði grein um frammistöðu hljomsveitarinnar undir yfirskriftinni Dulin stjarna Coachella 2017: Kaleo.
https://www.huffingtonpost.com/…
Hljómsveitin spilar næst í Hawaii þann 28. apríl en tónleikarnir eru hluti af Handprint Tour tónleikaferðalaginu. Hér fyrir neðan má svo sjá sveitina spila í spjallþættinum Jimmy Kimmel Live.