Íslenskt
Útgáfa lagsins ARNALDS síðastliðinn 16. desember markaði endurkomu Sveittra Gangavarða í íslenska dægurmenningu. Í dag tók svo sveitin af allan vafa um að eitthvað hálfkák væri að ræða með útgáfu lagsins MIZUNO: „Þetta er lag fyrir þá sem elska íþróttir en líka fyrir þá sem elska sígó og mígós,“ sögðu Gangaverðirnir í samtali við SKE í morgun.
Texti lagsins er beittur að vanda:
„Reima á mig Mizuno /
Fæ mér Carbload /
Samloku með túnó /
Skýst svo eins og spjót /
…
Hún spurði: er komið nóg? /
Ég sagði: Hell no! /
Ég sagði: MIZUNO! /“
Lagið er að finna á Bandcamp síðu sveitarinnar en þar má einnig finna neðangreindan texta þar sem meðlimir sveitarinnar kasta kómískum kveðjum á hin og þessi fyrirbæri:
„Thanks 2 sports for inspiration, wes for the cinematography, frank ocean for nikes, run dmc for my adidas, everyone who likes to run, do sports, also everyone who doesn´t like to do sports but likes to smoke cigarettes, listen to migos, wear mizuno, asics, etc.“
– Sveittir Gangaverðir