18. þáttur útvarpsþáttarins Kronik fór í loftið síðastliðið laugardagskvöld (8. apríl). Gestir þáttarins voru Balcony Boyz og Landaboi$ en þeir síðarnefndu fluttu lagið Hringdu í beinni ásamt því að semja vísur að munni fram yfir nokkur vel valin bít frá DJ B-Ruff.
Hringdu verður að finna á EP plötu sem Landaboi$ vonast eftir að gefa út í sumar:
„Lagið verður að finna á fjögurra laga EP plötu sem kemur vonandi út í sumar. Vonandi fyrir Secret Solstice en fæst orð bera minnsta ábyrgð.“
– Landaboi$
Hér fyrir neðan má svo sjá myndband við lagið Matrix sem Landaboi$ gáfu út síðastliðinn 17. janúar.