Tvö ár eru liðin frá því að rapparinn Chance the Rapper sendi frá sér plötuna Coloring Book. Platan fékk frábæra dóma og vann meðal annars til verðlauna á hinni mikilsvirtu Grammy verðlaunahátíð í Bandaríkjunum.
Síðan þá hafa margir aðdáendur rapparans beðið eftir nýrri plötu—og er nú útlit fyrir því að biðin sé senn á enda; í viðtali við útvarpsmanninn Peter Rosenberg fyrir helgi sagði rapparinn að ný sjö laga plata í samstarfi við Kanye West væri á döfinni (sjá hér að ofan). Aðspurður hvenær platan kæmi út sagði Chance að stefnan væri að klára plötuna í júlí. Með útgáfu plötunnar kæmist Chance the Rapper þar með í hóp með Pusha T, Kid Cudi, Teyana Taylor og Nas—sem öll hafa gefið út sjö laga plötur í samstarfi við Kanye West í sumar.
Þess má einnig geta að Chance hyggst gefa út lengri plötu með tónlistarmanninum Childish Gambino og er sú plata væntanleg á næstunni. Líkt og fram kemur í viðtalinu hafa tónlistarmennirnir tveir, sumsé Chance the Rapper og Childish Gambino, samið sex lög saman (sem eru öll hver mjög góð að sögn rapparans). Stefna þeir félagar á að klára átta lög í viðbót.
Nánar: https://pigeonsandplanes.com/n…
Hér fyrir neðan eru þau lög sem hafa staðið upp úr af fyrrnefndum sjö laga plötum sem Kanye West pródúseraði, að mati SKE.