Hér er einföld uppskrift sem tekur einungis nokkrar mínútur að útbúa. Best er þó að undirbúa þetta aðeins áður og leyfa þessu að standa í kæli í um 1 klst áður en þið byrjið að njóta!
Hráefni:
3 meðalstór avocado stappað
3 msk fínt saxað kóríander
2 tómatar saxaðir
1 rauðlaukur smátt saxaður
1 hvítlauksgeiri rifinn niður
Safinn úr 1 lime
salt, pipar, og cayenne pipar eða chilli eftir smekk
Öllu stappað vel saman í skál og lok sett yfir og inní kæli í 1 klst (má sleppa því og borða þetta strax en hitt er betra)