Haldinn var blaðamannafundur á Grillinu á Hótel Sögu nú rétt fyrir kl 14. Var það Michelle Roosevelt Edwards sem boðaði til þessa fundar og tilkynnti á honum endurreisn Wow air.
Að því er kom fram á fundinum náðust samningar hjá USAerospace Associates LLC og þrotabúi Wow air um kaup á þeim eignum um þrotabúsins sem tilheyra WOW vörumerkinu.
Roosevelt sjálf verður stjórnarformaður nýja félagsins, WOW AIR LLC, og mun félagið vera staðsett á Washington Dulles alþjóðaflugvellinum en einnig með aðsetur á flugvellinum í Keflavík og í Reykjavík.
„Við hyggjumst auka umsvifin í farþegafluginu með fleiri flugvélum áður en sumarið heilsar okkur. Frá fyrsta degi í vöruflutningunum, sem einnig munu hefjast á næstu vikum, munum við leggja mikinn metnað í vandaða þjónustu á sviði vöruflutninga með ferskt íslenskt sjávarfang á Bandaríkjamarkað,“ segir Roosevelt Edwards.
Þetta kom fram á vef Mbl í dag.