Tónlistarmaðurinn Páll Óskar þakkar Sýslumanninum í Kópavogi kærlega fyrir að hafa bjargað áramótaballi sínu á Spot.
Óvíst var hvort ballið yrði haldið eftir að Spot missti vínveitingaleyfi sitt á dögunum, sjá hér: Áramótaball Palla í uppnámi.
Skemmtistaðurinn hefur nú fengið vínveitingaleyfi sitt endurnýjað og árlegt áramótaballa Páls Óskars komið aftur á dagskrá. „Nú verður stillt upp hljóðkerfi og ljósum og Palla-skreytingum það sem eftir lifir dags.“ segir Palli í í tölvupósti til Fréttablaðsins.
„Árni Björnsson á Spot á engar þakkir skildar fyrir sína eigin handvömm. Aftur á móti sendi ég ég kærar kveðjur til sýslumannsins í Kópavogi. Takk fyrir að bjarga ballinu,“ segir einnig í tölvupóstinum.