Bíllausi dagurinn er í dag og verður því frítt í strætó í allan dag á höfuðborgarsvæðinu.
Af þessu tilefni verður gengin Bíllausa gangan og er mæting í gönguna kl 12.30 í dag. Gengið verður frá gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar sem leið liggur að Lækjartorgi þar sem verður margt um að vera. Samstaða og gleði verður allsráðandi í göngunni og restina reka tveir hljóðlátir raf-Strætóar sem gangandi geta fengið far með.
Viðburður verður við gatnamót Bankastrætis og Lækjargötu með ávörpum og tónlist. Hjólaviðgerðir, kynningarstandar, matarvagnar og fleira.
Frekari upplýsingar má finna á facebook síðu viðburðarins Bíllausi dagurinn 2019.