Dagatal Slökkviliðsins er árlegur viðburður og vekur alltaf mikla lukku. Á dagatalinu má sjá slökkviliðsfólk, fáklætt, að sinna störfum sínum eða einhverju tengdu því.
Nú er komið út dagatal fyrir árið 2020 og er það selt í Kringlunni, Smáralind, miðbæ Reykjavíkur og á netinu. Einnig er hægt að kaupa spilastokk með þessum sömu myndum og aðrar vörur sem tryggja öryggi fólks um jólin. Þar má nefna reykskynjara, slökkvitæki og fleira. Hluti ágóðans mun renna til barna kvenna sem leita til Kvennaathvarfsins og til Birtu landssamtaka foreldra barna og ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust.