Auglýsing

Fyrrverandi þingmaður „grætur“ á Facebook

Athygli vakti síðdegis í gær að Jón Þór Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, „grét“ á Facebook.

Jón Þór setti inn nýja prófílmynd þar sem hann er grátandi og skrifar: „Þegar allt annað bregst þá finn ég mýkt í sorginni og mikið er hún góð við mig. Að gráta eru fyrstu, og um tíma einu, viðbrögð ungabarns við sársauka svo lærði ég einhvern tíman að ef ég myndi gráta þá væri ég bara meiddur meira en núna er ég aftur að læra að gráta Takk fyrir hlýjuna elskuleg mér líður betur. Eigið yndislegan dag.“

Ekki er ljóst hvað veldur sorg þingmannsins fyrrverandi en fjöldi manns sendir honum hlýjar kveðjur, þar sem Jón svarar meðal annars „að sorgin sé akkúrat það sem hann þurfi núna, svo heilandi og frelsandi (sé sorgin)“. Færslu Jóns Þórs má sjá hér.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing