Áhrifavaldurinn Lína Birgitta leitar nú að keppendum til þess að taka þátt í glænýjum stefnumótaþætti sem mun bera nafnið Tinder laugin. Hún greindi frá þessu á Instagram síðu sinni í dag.
„Ef þú vilt koma þér á framfæri á samfélagsmiðlum og vonandi finna draumamaka þinn endilega sendu umsókn á tinderlaugin@gmail.com,“ segir Lína Birgitta. Það skiptir ekki máli af hvaða kyni þú ert eða hvaða kyni þú heillast að, allir geta sótt um. „Ef þú ert á lausu eða í opnu sambandi endilega sendu inn umsókn og vertu með,“ segir hún.