Framleiðsla er hafin á fyrstu flögunum úr íslenskum kartöflum og koma þær brátt í búðir.
„Hugmyndin kviknaði fyrir mörgum árum. Fjölskyldan mín á sumarbústað á Hornafirði þar sem mikið er ræktað af kartöflum. Ég sá hvað það var mikið magn af kartöflum sem voru teknar til hliðar og fóru ekki í sölu því þær þykja ekki nógu fallegar. Ég komst að því að það var enginn að búa til snakk úr íslenskum kartöflum og þannig kviknaði hugmyndin,“ segir Viðar Reynisson snakkframleiðandi.
Hann segir hugmyndina hafa kviknað fyrir mörgum árum en fjölskylda hans ræktar mikið af kartöflum í sumarbústað sínum í Hornafirði. Sá hann hversu mikið magn af kartöflum er tekið til hliðar og ekki seldar þar sem þær þykja ekki nógu fallegar. Hann komst að því að enginn væri að gera snakk úr íslenskum kartöflum og hugmyndin kviknaði.
„Það voru margir sem reyndu að tala um fyrir mér því íslenskar kartöflur þykja alls ekki heppilegar til snakkframleiðslu. Það er mikið af sykrum í þeim sem veldur því að erfitt er að steikja þær án þess að brenna þær. En við höfum þróað aðferð til að það heppnist,“ segir Viðar Reynisson snakkframleiðandi.