Vegna komu Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefið út áríðandi tilkynningu um lokanir á Reykjanesbrautinni í dag. Talið er að lokunin muni standa yfir í um 20 mínútur en lögreglan getur ekki gefið upp nákvæma tímasetningu.
„Ekki er vitað um nákvæma tímasetningu en lokað verður um það bil 5 mínútum áður en fylgdin fer á brautina og mun lokunin standa yfir í 5 mínútur eftir að fylgdin verður komin á brautina. Ekki er talið að lokunin muni sanda yfir í langan tíma. Sami háttur verður hafður á við brottför fylgdarinnar. Jafnframt má búast við tímabundnum umferðartöfum annars staðar á svæðinu af sömu ástæðu.“