Söngkonan GDRN hefur sent frá sér nýtt lag, Af og til, en það er af komandi plötu hvers titill er ekki orðinn opinber á þessu stigi málsins. Lagið er pródúserað af Arnari Young Nazareth Ingasyni en hann tilkynnti um plötuna á Twitter í gærkvöldi.
Nýtt lag frá krökkunum. Plata á leiðinni. Bara gaman. https://t.co/HkiMrHe3Fi
— Arnar (@youngnazareth) February 7, 2020
Ofurhönnuðurinn Siggi Odds hannaði þetta gífurlega fallega letur sem prýðir single-inn.